Stjörnuskífan: Ævintýri og vísindi er rafræn íslensk leikjabók (e. gamebook). Þetta er samstarfsverkefni mitt og hugbúnaðagerðarinnar Gebo Kano ehf., sem í senn er útgefandi verksins.

Stjörnuskífan er sérhönnuð og myndskreytt rafbók fyrir Apple-spjaldtölvur þar sem skáldskapur blandast við þrautir og fróðleik; ævintýri og saga vísindanna renna saman. Helsti efniviðurinn er sóttur til gullaldar íslams en það var tímabil á miðöldum þegar vísindi og menning blómstruðu í löndum múslima. Margir uppfinningamannanna voru langt á undan sinni samtíð. Til að mynda reyndi Abbas ibn Firnas að fljúga fyrstur manna árið 875, um það leyti sem Ísland byggðist.

Sagan fjallar um tvo unglinga í samtímanum, hinn íslenska Gunnar og hina íröksku Leylu, ævintýri þeirra og tímaflakk. Í kjallara skóla í Teheran finna þau skrítna klukku sem þeim tekst að gera við og hefst þá svaðilförin. Þau flakka til ársins 1206 þar sem þau hitta uppfinningamanninn Al-Jazari. Hann biður þau um hjálp við að ljúka meistaraverki sínu með því að safna hugmyndum forvera hans í sérstaka stjörnuskífu, sem er tímavél. Gunnar og Leyla flakka meðal annars til Húss viskunnar í Bagdad, til Sikileyjar þar sem þau hitta landkönnuðinn Al-Idrisi, til Aleppo þar sem þau hitta stjörnufræðikonuna Mariam al-Ijliya, þau lenda í klónum á illskeyttum töfraanda og margt fleira.

Í hverjum kafla liggur fyrir þraut sem tengist sögunni og uppfinningunum. Alls eru þetta fjórtán litlir tölvuleikir, sérhannaðir fyrir leikjabókina. Auk þess inniheldur Stjörnuskífanmikinn fróðleik sem hægt er að veiða úr textanum.

Fjallað er um allt sem tengist trúarbrögðum af hlutleysi, vísindin eru í forgrunni. Margt af því sem fram kemur hefur lítið sem ekkert verið skrifað um á íslensku áður, til dæmis um nokkrar vísindakonur á gullöld íslams. Í Stjörnuskífunni bregður einnig fyrir fyrirbærum sem eru ekki til í raun og veru, til dæmis tímavélum, töfradrykkjum og töfraöndum. Það er vegna þess að sagan er í grunninn fantasíusaga með fróðleiksívafi.

Hér hlekkur á kynningarmyndband sem sýnir virkni leikjabókarinnar.
Stjörnuskífan á Youtube

Leikjabókin fæst í App Store og er ætluð almenningi og skólum. Verkefnið er styrkt af Þróunarsjóði námsgagna.

Stjörnuskífan keyrir á iPad spjaldtölvum og það er hægt að sækja hana í App Store